Það er ekki ég sem er stór, það eru þið sem eruð lítil

Dóra

22.01.2007 00:44:39 / dorag

myndir frá 2006:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 13:55:35 / dorag

dimmitering:)

jæja...það er mikið að maður drulli sér til að blogga...búið að vera mikið annríki eins og einhver myndi segja..ég var að dimmitera síðasta föstudag og það var alveg yndislegur dagur.  Við byrjuðum kl.6 um morgunin í fyrirpartýi á Álftarnesinu, þar var drukkið og djúsað til um kl.9, þá tókum við rútu uppí FÁ og vorum með einhver læti þar, sýndum videoið okkar, gerðum grín af hinum og þessum kennurum og svona. Svo lá leið okkar niðrí bæ þar sem við trölluðum niður laugarveginn og enduðum svo nirðá Glaumbar þar sem við sátum sveitt til kl.3 við að árita árbækur hjá hvert öðru. 
Svo um kvöldið hittumst við á nýjan leik i sal í kópavogi þar sem var haldin dýrindis fest með kennurunum, eftir það héldu þau hörðustu á djammið en hinir héldu heim á leið eftir erfiðan en góðan dag:)

já gleymdi að nefna að við vorum sum sé GAMLAR KJELLINGAR....en ég læt myndirnar tala sínu máli:

þarna erum við í morgunmat hjá kennurunum, ég er þarna í þessari gasalegu lekker rauðu dragt:)

ég, Auður Jóna og Hertha í fyrirpartýinu

Erna, Björk og Kristín í fyrirpartýinu

Erna og ég

ég og Sjöfn, Björk málaði okkur svona geðveikt gamlar:)

nokkrar tjelllingar fyrir utan glaumbar

ég og Bríet í matnum um kvöldið

ég og Erla í matnum

og fyrir ykkur sem langar að sjá fleiri myndir þá eru hátt í 200 myndir inná þessari síðu:

http://s89.photobucket.com/albums/k221/fa06/Dimmission%20dagurinn/


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 01:51:12 / dorag

ný síða

hellúúú

bara að minna fólk á að skoða hina síðuna mína.....þar má kenna ýmissa grasa...skemmtilegar myndir og svona..

tjékk it fólks

slóðin er: www.myspace.com/dgudlaug


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 21:11:02 / dorag

Helgin..

já ég veit að ég er lélegur bloggari....

Síðasta vika var æðisleg...hitti hana Heiðbrá mína tvisvar í sömu vikunni sem verður nú að teljast met...altaf æðislegt að hitta hana:)

Svo fórum við Finnur vestur í Saurbæ seint á föstudeginum, stefnan var neblega tekin á Krossnes sundlaugina daginn eftir.  Við lögðum af stað um 1 leytið á laugardaginn ásamt Villa, Kjartani, Ebbu og Leó...við fórum á Hólmavík og þaðan meðfram ströndinni alveg að lauginni góðu sem ég vissi nú ekki einu sinni að væri til. En hún er sem sé alveg í fjöruborðinu og með náttúru heitum potti og bara alveg yndisleg...ég fann hérna mynd af henni á netinu til að sýna ykkur.  Við dvöldum þar í þágóða stund en héldum svo heim á leið um 6 leytið en stoppuðum á Hótel Djúpavík og svolgruðum  í okkur lokum og frönskum áður en við héldum lengra.  Heimleiðin gekk nokkuð vel þrátt fyrir smá spooký grjóthrun:S

Við komum ekki heim fyrr en um 11 leytið um kvöldið og fórum fljótlega eftir það í partý til Gísla..það var mjög fámennt en góðmennt og stóðu partýhöldin alveg til kl.6-7 um morgunin...eins og venja er fyrir á fylleríi þá var eitthvað góðgæti eldað og að þessu sinni varð pasta fyrir valinu..very delicious:haha: og eins og venja er líka fyrir þá var einhver hrekkur framinn..en ekki meira um það hér8)

Ég vaknaði svo um 9 leytið á sunnudaginn því ég hélt að húsið ætlaði að rifna í þessu hávaða roki sem var.....ekkert smá crazy....ég og jenný ætluðum á hestbak þá en leist ekkert á veðrið.

en ég færi ykkur gleðifregn....hún Birna sæta var að eignast litinn erfingja núna áðan....lítinn prins:) og ég óska henni innilega til hamingju með það:):D:D

ég nenni ekki meiru núna


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 23:39:35 / dorag

Fótboltamót og ball:)

jæja...maður verður víst að blogga inná þessa blessuðu síðu..

Síðasta helgi var lovely....við brunuðum vestur seint á föstudeginum...vorum komin þangað um 1 leytið um nóttina..ég fór beint að sofa en Finnur fór að lappa uppá lappa...svo vaknaði ég fyrir allar aldir á laugardeginum..um hálf 10 leytið og skellti mér á fótboltamót sem haldið var á Laugum..altaf gott að koma á gamla vinnustaðinn sinn....en anyways..Jenný hafði platað mig fyrr í vikunni í það að keppa á árlegu fótboltamóti þar á bæ....við fengum Hönnu Valdísi, Önnu Karen og Ingibjörgu til liðs við okkur og við gerðum okkur lítið fyrir og höfnuðum í 2.sæti...af 4 stelpuliðum..það er bara ágætt er það ekki?? eftir leikina okkar var ég svo lurkum laminn að ég fór beint heim til Finns og steinsofnaði....að sjálfsögðu með silfur medalíuna um hálsinn:)

Um kvöldið kom svo Siggi granni og sótti okkur.  Við kíktum í partý til Gísla í Búðardal...og ég get svarið að það er enþá vottur að hveiti lykt í eldhúsinu:) en já...það var margt um manninn í partýinu en svo fór fólk að tínast á ballið sem var haldið á Árbliki...þar var stemmingin nátlega í hámarki og svaka stuð...

þar...:

  • ...dansaði ég við unga sem aldna,
  • ...fór ég á hestbak á Evu Dröfn,
  • ...fór ég í bílaleik fram á gangi,
  • ...stal ég 20 hráum pulsum úr eldhúsinu,
  • ...fór Birgitta í setuvekfall
  • ...tók ég ostaskerara-dansinn
  • ...reyndu Finnur og Einar að fá samþykki hljómsveitar um að taka lokalagið sjálfir...NÍNU
  • ...fengu þeir ekki samþykki..en tóku það samt:)

Og eftir ballið fórum við í eftirpartý til Gísla...

þar....:

  • ...reyndi ég að taka til en hellti niður 2 bjórum
  • ...fóru Gísli og Finnur í Doritos og salsa sósu slag
  • ...var klósettpappírinn búinn!!!!

æji...ég nenni ekki að segja frá meiru..þetta var bara yndislegt kvöld og hitti fullt af skemmtilegu fólki sem ég vil þakka fyrir æðislegt kvöld....jájá

Daginn eftir var lítið annað í stöðunni til að slá á þynnkuna en  að skella sér í smá jeppaskreppitúr uppá Tröllatunguheiði....með í ferð voru Finnur, Villi, Leó, Jón Ingi og Hjörtur...við kíktum bara í klukkutíma eða svo og svo um kvöldið héldum við í langa og stranga ferð suður:)

takk aftur allir sem gerðu sér glaðan dag á laugardaginn:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 16:05:25 / dorag

Pistill fyrir þessa vikuna

Ætla að prófa að blogga í svona minnispunktastíl sem virðist vera að tröllríða bloggheiminum núna.

  • Við hjónakornið héldum party of five um helgina
  • Gísli, Kristján og Jenny voru þau heppnu.
  • Við sporðrenndum nokkrum og spiluðum eitthvað pókerspil sem kostaði 300 kr í hagkaupum langt fram eftir nóttu.
  • Ég vann næstum því.
  • Við 5 pöntuðum pizzu og leigðum mynd með mjög svörtum húmor daginn eftir.
  • Ég er að fara á bjórkvöld FÁ nr.3 í kvöld:)

Hérna meðfylgjandi eru myndir frá okkar fyrri bjórkvöldum sem ég stal af heimasíðu okkar lok-hópsins:)

000_0770.jpg

Ég vil taka það fram að ég var ekki eins ölvuð og ég lít út fyrir að vera..myndast bara svona skelfilega:)

IMG_0004.jpg

Þegar líða fór á kvöldið urðum við snar þroskaheftar:)

000_0757.jpg

Ákvað að láta fylgja með eina til að sýna að ég get líka myndast ágætlega:)

okidoki...bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 22:20:30 / dorag

Er eitthvað sannleikskorn í þessu eða hvað???

     +15°C
Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
Íslendingar liggja í sólbaði.

+10°C
Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
Íslendingar planta blómum í garðana sína.

+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.

0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.

-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.

-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli.

-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!

-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.

-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.

-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru
vetrarveðri.

-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.

-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti.
Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.

-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.

-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.

-300°C
Helvíti frýs!
Ísland vinnur Eurovision!
 


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 23:13:22 / dorag

babarababa

Dæs...strax farin að sligast undan álaginu sem fylgir því að halda úti bloggsíðu:( en það þýðir ekki að gefast upp....

Gerðum lítið um helgina, fórum jú á laugardaginn á Galtarlæk að sækja hryssu fyrir tengdó og gerðum stutt stopp hjá Birgittu og Helga í Hveragerði í bakaleiðinni og sáum loksins nýja barnið þeirra:) sunnudagurinn fór í litið annað en að borða og sofa....Og núna eru einungis  3 dagar í annað bjórkvöld okkar FÁ stúdenta sem verður tekið með pompi og prakt enda er þetta síðasta önnin í framhaldskóla og ekki annað hægt en að ljúka þessu með stæl:) svo næsta föstudag ætlar betri helmingurinn að leggja land undir fót og skella sér í "menningar" ferð til Kárahnjúka með skólanum og þá verður mín bara ein í kotinu stóra:/ en ætli það verði ekki bara standandi partý á meðan:)

jæja....heyrumst að viku liðinni


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 21:34:46 / dorag

I'm back:)

enn á ný ætla ég að hefja bloggferilinn og sjá hvað ég endist lengi í þetta skiptið:/

það sem ber hæst að nefna er að loksins sé ég fyrir endann á þessu skólastússi og  útskrifast við hátiðlega athöfn 20.desember..og get ekki beðið:) ég og Finns erum líka búin að flytja í svaka mansion á Álftanesinu...allir velkomnir í heimsókn...altaf heitt á könnunni...

mér tókst að vanda að gera mig að rækilegu fífli í gær þegar klósett hurðin uppí skóla stóð eitthvað á sér og ég ákvað að rykkja all svakalega í hana...og gleymdi alveg hvað ég er sterk og reif hurðarhúninn og allt draslið af hurðinni....stóð svo eins og fáviti á ganginum með hurðarhún í höndunum og einhverjir busaræflar hlæjandi að mér.....já svona er nú gaman að þessu

já..

Bæbæ  


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 23:15:29 / dorag

..

habbahabba..skólinn loksins búinn og eintóm gleði framunda...já einmitt.

Í gær var síðasti skóladagurinn og það var grillað og svoleiðis...ágætis skemmtun svo sem..en toppurinn var nátlega þegar Raggi Bjarna kom og tók Flottur Jakki live fyrir okkur úti....ég hefði svo verið til í að stíga þarna á stokk með Finnznagger og nokkrum vel völdum HFH-meðlimum og taka fine jakke með honum...eða jafnvel sweet jacket...nú eða bara bæði.

oki..ég nennni ekki meiru núna


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 10:28:13 / dorag

Allir krakkarnir...

Allir krakkarnir horfðu á örbylgjuofninn nema Binni...
...hann var þar inni...

Allir krakkarnir horfðu á kirkjuna brenna nema Hermann...
...það var verið að ferm'ann...

Allir strákarnir náðu sér í stelpu nema Tommi...
...hann var hommi...

Allir krakkarnir voru með gel í hárinu nema Hrund...
...hún var með brund...

Allir strákarnir sváfu vel í tjaldinu fyrir utan Skúla...
...hann var notaður sem súla...

Allir strákarnir voru með á körfuboltamyndinni nema Bergur...
...hann var dvergur...

Allir krakkarnir komu uppúr sundlauginni nema Þráinn...
...hann var dáinn...

Allar stelpurnar vorum með brjóst nema Lena...
...hún var með spena...

Allar stelpurnar fóru á klósettið nema Sigga...
...hún lét vaða á bringuna á Bigga...

Allir krakkarnir komu með Svala í skólann nema Þór...
...hann kom með bjór...

Allir krakkarnir léku sér saman í körfubolta nema Gvendur...
...hann hafði engar hendur...

Allir krakkarnir skemmtu sér í læknisleiknum nema Vera...
...hún var sú sem var verið að skera...

Allir voru viðstaddir við fæðinguna nema Víðir...
...hann var með hríðir...

Allir krakkarnir fóru uppúr sjónum þegar hákarlinn kom nema Linda blinda...
...hún var ennþá að synda...


Allir krakkarnir fóru að gráta við jarðarför kennarans nema Mæja...
...hún fór að hlæja...

Allar stelpurnar notuðu víbrador nema Eir...
...hún notaði leir...

Allir krakkarnir eru í góðu skapi nema Björg...
...hún er alltaf svo örg...

Allir krakkarnir voru með hár nema Halla...
...hún var með skalla...

Allir strákarnir áttu kærustur nema Stjáni...
...hann fékk þær í láni...

Allir strákarnir gerðu stelpurnar óléttar nema Sillu...
...hún notaði pillu...

Allir krakkarnir voru að syngja nema Fríða...
...hún var að ríða...

Allir krakkarnir voru að leika sér með ostaskerann fyrir utan Eið...
...hann kom út sneið fyrir sneið...

Allir krakkarnir voru í lúdó nema Ingó...
...hann var í bingó...

Allir krakkarnir fóru að synda nema gamla...
...hún kunni bara að svamla...

Allir krakkarnir höfðu tippi fyrir utan Öllu...
...hún var með Pjöllu...

Allir strákarnir voru að dansa við stelpurnar nema Ágúst....
.....Hann var að dansa við strákúst....

Endilega komiði með fleiri ef þið kunnið....



» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 14:38:50 / dorag

sunnudagur

Ákvað að blogga aðeins svona til tilbreytingar......það sem hefur á daga mína drifið er ýmislegt...

  • Á fimmtudaginn fór ég með Kristrúnu í Smáralindina að versla en ég kom samt tónhent heim...öllum að óvörum
  • Á föstudagskvöldið heimsótti ég Hrafndísi og Sindra og fleiri...horfðum á nerdism þáttinn Beauty and the geek og svo á little britain sem var algjör snilld.  Svo brugðum við Hrafndís okkur á rúntara niður laugarann og stoppuðum í BSÍ til að kaupa franskar og svið.
  • Laugardagurinn fór að mestu í afslöppun, kíkti aðeins í búðir með Gísla bró og svo um kvöldið fór ég með Finni mínum á American Style þar sem hún Anna panna Rún er að vinna...eftir það horfðum við bara á TV til um 4 um nóttina:)

En það sem er kannski hæst í fréttum er að hún Helga sæta sem bjó á sama tíma og ég útí Bandaríkjunum var að eignast litla stelpu í gær sem þið getið séð hérna...http://www.blog.central.is/thegirlz

bæbæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 19:27:26 / dorag

jaríjarí

 

 

Fann þetta á einhverri síðu og fannst þetta pínu fyndið..allavega fyrst

-kommentið ykkar-

Veldu mánuðinn sem þú fæddist
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaðiá

Veldu núna afmælisdaginn þinn
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í nafninu þínu

A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 17:16:40 / dorag

Páskaferð HFH

...hvar á ég að byrja?? þessi ferð var alveg æðisleg í alla staði og varla hægt að lýsa því í orðum...en jæja...ég ætla að reyna

Ferðin hófst seinni partinn á fimmtudeginum, við fórum á 4 jeppum til Selfossar til Kristjáns Arnar og biðum þar í dágóðan tíma eftir Kjartani og Fordinum.  En svo kom Kjartan einn síns liðs til Selfossar vegna þess að Fordinn neitaði að koma með.  Eftir að hafa spilað tölvuleiki og tekið nokkur gítarspil þá lögðum við 11 manns af stað á 5 jeppum(2 pattar, 4runner, discovery og blái hiluxinn). Ferðinni var heitið til Jökulheima sem er við rætur Vatnajökuls, ferðin gekk bara merkilega vel, dáldið myrkur og nokkuð kalt þegar við komum í húsaskjól um 2 leytið minnir mig en það var ekki annað í stöðunni að gera en að bresta í söng og drykkju. Og auðvitað var skálað í nýju HFH bjórkrúsunum. Ég man nu ekki hvenær var lagst í rekkju það kvöldið en það er náttúrulega bara aukaatriði.

Við fórum flest á fætur mjög snemma enda brakandi blíða úti og nokkrir sprönguðu um á nærunum úti..svo gott var það.  Skálinn góði var þrifinn í snatri, svo hratt að kæliboxið okkar Finns gleymdist þar með öllum matnum okkar og við vorum bara með 3-4 kíló af hakki og spaghettíi í bílnum og það átti að duga okkur í 2 daga:) Stefnan var tekin uppá Vatnajökul í þetta skiptið og færðin þangað byrjaði mjög vel og allt gekk að óskum þar til í blálokin, þá fór aðeins að þyngjast færið en við vorum komin uppí Grímsfjall um 6-7 leytið um kvöldið, þar fuku nokkrir bjórar og svo skelltum við okkur í gufubað..já pæliði í snilldinni að skella sér í gufu í 1700m hæð. Já það gerðist marg skemmtilegt þetta kvöld og mörgum leyndarmálum uppljóstrar sem eru best geymd á milli okkar:)

Fóru svo flestir að sofa um 5 leytið minnir mig en við vorum nokkur vöknuð aftur um 8 leytið því að veðrið var svo æðislegt að það hefði verið synd að sofa það af sér. Veðrið var svo flott, bara mergjað, það er ekki hægt að lýsa því. Við lögðum af stað um 3 leytið aftur niður af jöklinum að Jökulheimum aftur og lékum okkur allan daginn í geggjuðu veðri og bara nokkuð fínu færi.  Lékum okkur lengi og vel á stigasleða og skemmtum okkur ótrúlega vel...say no more:) ég legg nú ekki í að telja upp alla þá hluti sem við gerðum...þetta var bara æðislegur dagur. Vorum svo komin um kvöldið í Jökulheima aftur og þar poppaði ég fyrir mannskapinn og gleðin hélt svo áfram alveg langt fram eftir nóttu.

Daginn eftir, á sunnudaginn, var veðrið enþá mjög gott en dálítill vindur.  Við lögðum af stað heim á leið um 3 leytið.  Færðin heim var mjög góð og þess vegna gafst okkur tími til að leika okkur í snjónum á leiðinni.  Vorum komin í Selfoss um 8 leytið og auðvitað var stoppað þar til að fá pítsu og rifjað upp skemmtileg móment frá ferðinni sem voru í tonnatali.  Svo kvöddum við alla og tekið var eitt lokahopp og svo héldu allir í sína átt.

Þetta var ein af bestu ferðum HFH að mínu mati allavegana og ég vil bara þakka Finni, Villa, Einari, Hirti, Kidda, Gísla, Kjartani, Kri.Erni, Önnu og Sylvönu fyrir alveg geggjaða ferð:) og ég veit að ég nefndi ekki allt það sem við gerðum né alla þá gullmola sem flugu á milli okkar....það gerðist bara of margt skemmtilegt til að hægt sé að koma því niður á blað...takk aftur folks:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2